sunnudagur, desember 10, 2006

Allt getur beðið til morguns^^

..MSN laust kveld. enda laugardagskveld:P ósköp eðlilegt.. nema fyrir mig sem hunskaði mér heim snemma úr staffapartýinu.
Þetta hefur verið indæll dagur, Damien Rice-legur dagur. Vaknaði mygluð um hádegi -einungis Birgi að kenna^^-og kom mér niður á Glerártorg til gaula rám og sofhás með kórnum. Klóraði í bakkana varðandi jólagjafirnar með fögrum félagsskap nokkurra kórfélaga, kláraði nokkur óekkí krefjandi verkefni, sífellt við hugann við hversu gaman væri nú að geta unnið heimaverkefni sem maður hefði áhuga á að gera.. grasið hinum megin, sjáið þið? ... kúrði í tónlistarleysi uns ég dröslaðist í jólahlaðborð Nýjabíós, sem var reyndar alveg frábærlega bragðgott og mettandi.

Það gerði samt það að verkum að ég fór að íhuga.. áfengi. Hvað er það sem gerir okkur -sumum- unglingum ókleift að skemmta okkur án áfengis? Nú ætla ég ekkert að vera með móral út í drykkjufólk, ég virði það jafnt og bindindisfólk. Ég fór bara að huxa um það hvers vegna við.. unga, hressa heilbrigða fólkið teljum okkur svo oft þurfa örvandi? efni til að vera partýhæf.
Það drekka líka langflestallir. Einstaka unglingar skera sig út úr þvögunni. Vinir mínir fyrir austan, sunnan og norðan drekka - langflestallir. Og allir vilja þeir að ég drekki. Sem er kannski skiljanlegt.. það gæti máske verið áhugaverð sjón:P en *dæs* þetta átti að vera beinskeytt og rökstudd grein hjá mér ..en síðan bara stökk hugur minn úr einu í annað og endaði loks í einlægu mumfi. Gildir einu.. þetta kemur hjá mér einn daginn. Huxx..
Allt getur beðið til morguns þó.
Erum við nokkuð mikið meira en börn?

Angurvær jazz Ellu Fitzgerald. Apríl í París..

Byrjuð að safna mér fyrir plötuspilara. 24.000 krónur hér kem ég=)

Ég sakna jólanna..
jólanna með heimabökuðum piparkökum heima í stofu en ekki keyptum piparkökum í körfunni upp í afgreiðslu vistarinnar.
Jólanna með jólaföndri í Brúarási en ekki tvöföldum náttúrufræðitíma í Menntaskólanum á Akureyri.
Jólanna með tíma til að horfa á jóladagatalið eftir kvöldgjafir í heyugum ullarsokkum en ekki á þeytingi með hugann við skiladaga og heimaverkefni.

..ojæja. Grúsk í V for Vendetta eða Vita Brevis er ívið meira freistandi en star á of bjartan tölvuskjáinn, í myrkrinu klukkan seint.

..elskumst=)

Tuddles^^

mánudagur, desember 04, 2006

*bros*

Það er alltaf best að finna lag sem fangar skap manns þegar maður situr uppi í rúmi með lófafylli af tónlist.. ég byrjaði á Jailhouse Rock með Elvis, en ég er aðeins of lúin^^ rambaði síðan á Popplagið með Sigur Rós og það var nákvæmlega það. Þá vitið þið það=)

Lífið gengur sinn vanagang. Mánudagur. Minn var kátur.
Og allt í einu varð mér huxað til Bangsímons..
..onei. Enginn Bangsímon í sjónvarpinu á mánudagskvöldi. Bara endursýning á útþynntri Spaugstofunni, Jay Leno að gera grín af IKEA og kirkjunni og auglýsingar..*andvarp*

*geisp* MSN laust kvöld. Allir að gera eitthvað annað býst ég við. Ég megna ekki einu sinni lítið herbergjarölt í augnablikinu. Að hlusta á gamla rónann sem kom í Sambíóin okkar röfla um Hagstofu Íslands, Lystigarðinn, Vaðlaheiðina, veðurfræði og bæta síðan við einstaka sinnum:
-Jóla hvað?
hefur líklega haft svona örmagnandi áhrif á mig. Hann var nú samt vænsti kall, eins og hann spurði mig allavega sex sinnum að- hann hefur bara svolítið gaman af því að fá sér smá í staup á sínum eldri árum, eins og hann sagði mér allavega fjórtán sinnum.

Dagrún! er að fara.. af landi brott. Það verður ekkert skemmtilegt. Ég mun sakna hennar. Við verðum að kveðja hana með viðeigandi hætti^^ aye? Uppástungur? =)

....

17 dagar í jólafrí - 20 dagar í jól - of margir dagar í næstu sunnanferð..

*væl*

Tími kominn á lítinn svefn.

Tuddles mín kæru^^

föstudagur, desember 01, 2006

And a rock feels no pain..

Hér er ég aftur á ný=)

1.desember. Ein þriðja gella nýkomin úr plokkun&litun eða handsnyrtingu og ég fæ spurninguna 'ertu búin að finna þér kjól?' að meðaltali tvisvar á dag. En það er svosem ekkert verra en hvað annað. Í kveld mun ég brýna raustina fyrir framan 900 manns. Það verður gaman^^ ..en allt stendur og fellur með gleðinni í þessu máli, og ég skipaði sjálfa mig í það vanþakkláta og erfiða starf að vera með sífelldan jákvæðnisáróður í kórnum.
Hvernig sem fer er ég stolt í hjarta^^ of margir klukkutímir, falskir tónar og raddleysi farnir í þetta til að vera í fýlu..

Allt þetta kúr hefur hefur skert heilastarfsemi mína.. já=) ég er búin að vera að kúra og vera í súrrealísku draumamóki og sofa, síðustu klukkutímana, og hlusta annars hugar á playlistann minn tileinkaður nákvæmlega þessum athöfnum. I'll follow you into the dark með Death cab for Cutie í spilun í augnablikinu.. *hux* oooog svo Barbriallen Simon & Garfunkels.. yndi.

Pizza með skinku og kryddpylsu -sem er pepperone bókstaflega, mötuneyti MA ætti að fá bikar fyrir að geta látið allt hljóma betur en það bragðast - bíður mín..

...12 klukkustundum síðar=)

Þessi matartími endaði í langri og miskunnarlausri tilraun mín og Péturs við að drepa tímann.. gekk nú reyndar prýðilega.. hann dó allavega í lokin^^

*svengd*

Úh:P Þetta blogg spannar tvo daga..því nú er kominn 2.des^^ Jagúar hefur kvatt sviðið og ég er orðin funky junky með sára fætur, lúin bein og stolt hjarta..klukkan of mikið til að geta huxanlega verið fersk í tveggja klukkustunda aukastærðfræðitímanum um hádegi á morgun. Drasl.

Gömlu dansarnir! Nýleg persónuleg uppgötvun. Ég hlakka strax til þorrablótsins á Héraði, þar sem maður fær tækifæri til að dansa við fagmenn.. *hóst* strákar.. ;)

Ég hallast ætíð meira að því að flutningur minn til Akureyrar hafi verið ómeðvituð málamiðlun.. staðsetti mig akkúrat á milli vinahópanna minna, í vandræðalegri fjarlægð frá báðum þeirra, sem hefur skapað æ meiri bobba í heilahveli mínu upp á síðkastið.. þið sem vitið hvers vegna, þið vitið hvers vegna:)
Sem minnir mig á.. pYlsa með kartöflusalati er án efa eitthvað sem allir ættu að upplifa að snæða, sund á nærfötunum í frosti er eitthvað sem ..já:P var ekkert sérlega gáfulegt að upplifa en algjerlega þess virði samt sem áður.
Ég fíla ekki tásluklám.
..en ég fíla Kaffi Hljómalind=)

Framtíð í biðstöðu.
*sof*
Tuddles mín kæru^^

.. and an island never cries.