ég er bitur.
Ég elska sveitina. Hún er yndi! Ég er auðvelt skotmark fyrir þá sem luma á endalausum hillbilly bröndurum þar sem ég tek þeim bröndurum nærri því undantekningarlaust illa. En ég elska nú samt sveitina.
Maður kemur heim og á móti manni tekur norðanáttin með viðeigandi angan úr skítakjallaranum í fjárhúsinu, tveir flaðrandi hundar og einstaklega feitur köttur. Maður borðar sveitamatinn, unir sér vel við að gera ekki neitt nema að hangsa og gefa kindunum.. horfa á litlu lömbin og sætu hvolpana. Í anda hleypur maður berfættur í grasinu með lömbunum í einskærri hamingju. *andvarp*
..
Alveg þangað til maður fer að þurfa á félagsskap jafnaldra sinna að halda. Það gerist þannig að maður fer til Egilsstaða, en annaðhvort fer maður snemma heim því það þarf auðvitað að ná í mann, eða þá að maður gistir þar. Ég haata að sofa annarsstaðar en heima hjá mér, nema auðvitað að það þjóni einhverjum tilgangi og ég sé raunverulega ekki að fara að sofa.. heldur "sofa". Ég "sef" ekki á Egilsstöðum..
Þess vegna kaus ég, í stað þess að fara til Egilsstaða og finna mér vini, að hafna rúminu hennar Fjólu sem er fullt af myslu og alls konar.. ástarvökva, og vera bara heima.
Biturð.
Ég þoli ekki að vera bara heima.. núna. Ég hef eeekkert að gera. Ég er búin að gera allt sem ég gæti gert. Það eina sem er eftir er að horfa á Colin Farrel vafðan í lak á virðulegan hátt á RÚV.
Ég á æðislega fjölskyldu og allt það. Já, mamma mín mun lesa þetta.
En þetta getur verið eins og opinn fangaklefi. Maður getur alveg farið.. en samt ekki.
Eða bíddu.. þessi líking hljómaði betur í huganum.
Allavega. Aðalatriðið í þessari eymdarræðu minni er sem sagt þessi:
Ég er bitur.
P.S "sofa" þýðir raunverulega að ríða. Bara svona.. láta ykkur vita.
..elska þig líka mamma^^
föstudagur, apríl 06, 2007
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)