ég er bitur.
Ég elska sveitina. Hún er yndi! Ég er auðvelt skotmark fyrir þá sem luma á endalausum hillbilly bröndurum þar sem ég tek þeim bröndurum nærri því undantekningarlaust illa. En ég elska nú samt sveitina.
Maður kemur heim og á móti manni tekur norðanáttin með viðeigandi angan úr skítakjallaranum í fjárhúsinu, tveir flaðrandi hundar og einstaklega feitur köttur. Maður borðar sveitamatinn, unir sér vel við að gera ekki neitt nema að hangsa og gefa kindunum.. horfa á litlu lömbin og sætu hvolpana. Í anda hleypur maður berfættur í grasinu með lömbunum í einskærri hamingju. *andvarp*
..
Alveg þangað til maður fer að þurfa á félagsskap jafnaldra sinna að halda. Það gerist þannig að maður fer til Egilsstaða, en annaðhvort fer maður snemma heim því það þarf auðvitað að ná í mann, eða þá að maður gistir þar. Ég haata að sofa annarsstaðar en heima hjá mér, nema auðvitað að það þjóni einhverjum tilgangi og ég sé raunverulega ekki að fara að sofa.. heldur "sofa". Ég "sef" ekki á Egilsstöðum..
Þess vegna kaus ég, í stað þess að fara til Egilsstaða og finna mér vini, að hafna rúminu hennar Fjólu sem er fullt af myslu og alls konar.. ástarvökva, og vera bara heima.
Biturð.
Ég þoli ekki að vera bara heima.. núna. Ég hef eeekkert að gera. Ég er búin að gera allt sem ég gæti gert. Það eina sem er eftir er að horfa á Colin Farrel vafðan í lak á virðulegan hátt á RÚV.
Ég á æðislega fjölskyldu og allt það. Já, mamma mín mun lesa þetta.
En þetta getur verið eins og opinn fangaklefi. Maður getur alveg farið.. en samt ekki.
Eða bíddu.. þessi líking hljómaði betur í huganum.
Allavega. Aðalatriðið í þessari eymdarræðu minni er sem sagt þessi:
Ég er bitur.
P.S "sofa" þýðir raunverulega að ríða. Bara svona.. láta ykkur vita.
..elska þig líka mamma^^
föstudagur, apríl 06, 2007
þriðjudagur, mars 27, 2007
Það er alltaf hægt að finna sér eitthvað betra að gera en að sofa..
Vitið þið..
Þegar ég var fjórtán ára helltist lífið yfir mig allt í einu. Heimspeki.
Síðan eltist lífið úr mér og við tók snubbótt tilvera.
Sextán ára í jákvæðnisflippi vegna þess að það þaggar niður í vælinu í fólki.
Klæði mig spes því ég er ennþá að bíða eftir að fötin geri mig frumlega.
Flý venjuleikann því það sýnir best hvað við erum öll.
Bara verur efst í fæðukeðjunni með ekkert stórfenglegt í höndunum.

Gjörðir ala af sér huxanir. Huxanir ala af sér gjörðir.
Ég huxa – því er ég.
Ég er bara.
Því meira sem ég huxa því minna er ég.
Ég huxa – því er ég.
Ég er bara.
Því meira sem ég huxa því minna er ég.
Bætum við punkti, ýtum oftar á enter og köllum það ljóð.
Listvænt. Kallið mig artí.
Listvænt. Kallið mig artí.
--
Tók þunglyndiskast um daginn sem sprakk í Wordskjali. Þetta var afreksturinn.
..og lífið gengur enn og aftur sinn vanagang. Venjulegir hlutir í bland við þá sem eru of persónulegir fyrir þetta blogg.
Cat Power muldrar eitthvað syfjulegt og letjast við gítarinn.
Yndislegt kvöld samt sem áður=) .. takk ó svo mikið fyrir það Pála og kó^^ .. ég hló.
Mynd sem ég tók í Akureyrargöngunni. Kannski er ég sú eina.. en mér finnst eitthvað svo flott við hana.
Biðst innilega afsökunar á þessu samhengislausa og enteróða bloggi. Ég er sybbin.
Hafið góðan dag.
þriðjudagur, mars 13, 2007
Vææl..!
Urg!!
upptekni dagur..
Það eru opnir dagar í MA - Ratatoskur í MA þessa dagana, og þessi dagur stefnir í að vera ansi kaloríubrennandi og þreytandi líka.
Gærdagurinn fór í að dundast við að vera á fyrirlestrum en í dag var ég að vinna fyrir Munin allan skóladaginn og tók myndir og skrifaði niður hvað var að gerast á hinum ýmsu námsskeiðum og fyrirlestrum innan skólans og úti.. loksins búin og þá er Muninsfundur eftir smástund, beint í gítartíma, þvínæst kóræfing og þá Heimspekileg Dansveisla..
og auðvitað kýs ég að sitja hérna og væla í staðinn fyrir að nýta tímann til að læra fyrir setningafræðipróf á morgun..
Tel niður í svefn, helgi og páskafrí..
úh! til að nýta mér þetta tjáningarform þá spyr ég:
Hverjar voru, að ykkar mati, þrjár bestu/verstu íslensku/erlendu plötur ársins 2006?
Fann draumahúsið mitt núna áðan=)
..pínulítið kríli í kremju milli tveggja húsa.. yndi^^
...
Elskumst=)
Tuddles^^
þriðjudagur, febrúar 27, 2007
Say Yes=)
I'm in love with the world through the eyes of a girl..^^
..syngur Elliott Smith. Hann gerir mig alltaf káta.
Ég á töfrapeysu. Risastór ullarpeysa sem breytir mínum risastóra skólametnaði ávallt í einskæra leti og kúr þegar ég smeygi mér í hana. Til dæmis er ég búin að eyða síðasta hálftímanum í að vafra um www.pandora.com í staðinn fyrir að læra fyrir félagsfræðiprófið á morgun..
.. ég er opin fyrir hugmyndum af nafni á peysuna mína.

Hressleikinn uppmálaður alveg hreint=)

og eftir það áttaði ég mig á því hversu ótrúlega ómerkilegt þetta var^^
ojæja.
Minnir mig ótrúlega á alla litlu krakkana í 'The Wall' þegar þau standa öll saman og syngja: We don't need no education
Ég fór að huxa. Það er svo oft talið að kindur séu óendanlega heimskar skepnur. Hvað ef þær eru bara svona ótrúlega svalar rebel?
Þið vitið.. þegar maður er að smala þá einhvern veginn vilja þær aldrei fara þangað sem maður vill að þær fari og þær eiga að fara..
Einhvern tímann huxað út í það að þær séu bara í svona eilífri uppreisn?
Annars er þetta bara vanagangur. Skóli. Vinnan. Hangs. Kór. Kaffihús. Gítarglamur.. Jóhanni til mikils yndisauka=)
ég samdi lag í dag. Það er einungis mér til afnota.
Heyrið mig! Svarfaðadalur! Þar festist ég um helgina. Það var voðalega gottvont..
Skátar eru álíka sérstakur þjóðflokkur og Jökuldælingar. á jákvæðan hátt þó.
að kunna fullt af úgalabúgala lögum og að baka pönnukökur yfir brennandi spreki er já.. viss hæfileiki.
Ef ég er að hoppa úr einu í annað þá semsagt fór ég til Svarfaðadals á laugardaginn vegna þess að Jóakim var þar. Og þar sem ég er miklu snjallari þá reddaði ég mér þangað..
spreeell.
eða.. blöh=>
..og festist þar síðan. en Pétur og Kári eru yndi mánaðarins og örugglega næstu líka og komu og sóttu mig=) og beint í Siegal -Mr. Siegal, Séra Siegal eða Herra Siegal - parteyy.
sem var einstaklega hresst og ánægjulegt en síðan syfjað og lagði heilan sunnudag undir sig í svefn..
Hressleikinn uppmálaður alveg hreint=)
Nóg að sinni.
Sof og tónlistin hans Bigga. Jé!
Skoh hvað ég er orðin góð í að lauma honum með..
NóttNótt
Tuddles mín kær=)
.. the morning after.
fimmtudagur, febrúar 15, 2007
Velkomin til Þórsmarkar!
Lífið er gott.
Byrjað að ganga sinn vanagang aftur. Skóli. Vinna. Hangs. Best þannig^^
Ég er flutt yfir á gömlu vist, á Þórsmörk. Herbergi 209. Ógó kósí! Mér finnst þetta virkilega indælt.
Ég er eina stelpan á stigaganginum, sem er pínu skondið. Er að undirbúa að yfirtaka eitt klósettið af sameiginlegu klósettunum okkar með því að setja dömubindispakka þangað og hengja stelpumyndir þar inn.. veit ekki hversu mikið strákar fíla það að hafa eitt stykki Orlando Bloom eða Justin Timberlake hangandi yfir sér meðan þeir pissa=P og þó...
*þankahríð*

en já. Form er fegurð..
Angurvært.
Iron & Wine og spjall.
Ég fór að íhuga í þýskutíma.
Það er frekar mikill munur á okkar kynslóð og þeirri á undan. Þeirri gömlu finnst við oft vera hálfgerðir hálfvitar sem kunnum ekki til verka og fussa og sveia yfir drykkjulátunum og sukkinu í okkur, letinni, dónalegheitunum og öllu sem amar að okkur..
En hvaðan kemur það allt? Hvaðan fáum við tölvurnar? Hver selur okkur áfengið og dópið?
Hver veitir okkur frelsi, sjálfstæði og möguleika til að gera það sem við viljum?
Og hver hefur mest áhrif á það sem við viljum gera?

Kvennakvöld síðasta þriðjudag. Ég, Ásta og Margét skildum strákana eftir heima eitt kvöld..
og auðvitað fóru þeir að grallarast eitthvað ótrúlega ósniðugt..
Kvennakvöldið var yndi samt. Allt sem allra kvenrembulegast, nokkrir karlkyns MA-ingar roðnuðu niður í neðri hluta og mumbluðu út úr sér vandræðalegum svörum þegar þeir voru spurðir út í hápersónulega hluti og olíubornir sportífartís þjónuðu okkur pizzur=) Ágætis eyðsla á kvöldi.

... =)
Jóakim átti afmæli=) á Valentínusardag.. svo sykurhúðað. og síðan óskaði bekkjasystir mín mér til hamingju með hann og allir héldu að ég ætti afmæli og ruku til og óskuðu mér til hamingju.. og.. það var öörlítið vandræðalegt.
Birgir! ..Hann verður að fylgja með greyið^^
..Nóg að sinni.
Tuddles mín kær ^-^
Góðar stundir!

miðvikudagur, janúar 31, 2007
Life is a long song.. og love song líka^-^
..og stigagangur eitt lyktar af alltof gömlum appelsínum.
Og *blíbb* syngur og dansar við Elton John..^-^ ...*hóst* Jóhann Már *hóst* thíhíh..
Aftur til Akureyrar. Fríið búið og vekjaraklukkan tekin til starfa á ný.. *andvarp*
Gott frí samt=) Byrjaði á að fara heim, ansi ósofin eftir ævintýri þeirra Jóhanns & Þorsteins með misnot af vodkapelanum.. Öl er böl já!
Heima var gott. Fulltfullt af ást^-^ ég heimsótti Egilsstaði. Það var gotterí.. eins og góð vinkona mín Dagrún Norsarafari segir. Fékk mér Búlluborgara, það var svo sannarlega langþráð:) og hitti alla grallarana, hljómsveitina og allar grúppíana sem elta þær á röndum, gamla bekkjarfélaga og skólafélaga og Gummaknús!!
Síðan suuður!! Það var langþráðast=) og mest gotterí! ég afrekaði margt þar.. ég sleikti nefið á Bjarna með viðkomu í linsunni á myndavélinni minni, sýndi einstaka menningarlega hæfileika mína með því að rugla viðskiptabanka saman við hraðbanka, eða hvað í helvítinu sem þetta var! *roðn*=) rúhústaði Jóakim í kleppara inná Kaffi Hljómalind og ... =) aaaást..
..þú samlokuna mína? híhíh!
ég er ófær um að segja eitthvað gáfulegt!
Miri ómar í herbergi ..1210 og Jóhann krassar stemningunni einstaka með því að syngja Kindin Einar með frumlegum og frumsömdum texta^^ .. og Margrét gerir eitthvað greindarlegt á Veraldarvefnum.
Sound of silence..
Nei! ég gefst upp! Það bara kemur ekkert gáfulegt! .. sætti við fávísi í dag er óumflýjanleg.
ég læt ykkur vita þegar eitthvað snjallt kemur út frá heilabúinu mínu..
www.myspace.com/karpediiem =) ógó dugleg þessa dagana
Tuddles mín kær^-^
..we will meet in the sweet light of dawn=)

miðvikudagur, janúar 10, 2007
Ég mun deyja úr fáfræði..
..sagan sem fylgir titlinum er óendanlega hálfvitaleg, og hana mun ég segja síðar, þegar ég er ekki upptekin við að syrgja mína eigin heimsku..
...
..*sorg*..
...
Reyndar á þetta eftir að verða fyndið eftir smástund, en þangað til ..þá líður mér illa.

miðvikudagur, janúar 03, 2007
Bless 2006! Bless Saddam! Bless Náttúra!
Hæ=)
ég biðst afsökunar fyrir skriftleysi mitt upp á síðkastið, ég hef einfaldlega verið upptekin við að jólast og vera löt.. sem minnir mig á það að þessum sturluðu og þreytandi hátíðum er að ljúka og vil ég nota tækifærið og óska öllum þeim sem ég hef ekki óskað, og eða þá óska þeim sem ég hef þegar óskað aftur - Gleðilegra jóla og hamingjuríks nýs og ó svo spennandi árs=) og þakka öllum sem eiga þakkir skilið fyrir að vera þið og ..veita mér ást^^
En aftur að hátíðunum sjálfum.
Ég elska jólin. Innilega mikið. Hefðirnar, maturinn, kærleikurinn, hátíðleikinn yfir öllu, ljósadýrðin.. - en hvar er friðurinn? Hátíð ljóss og friðar, ekki satt?
Einhvern veginn finnst mér það löngu grafið og gleymt og spreð og stress tekið við með tilheyrandi brjálæði í verslunarmiðstöðum, búðum og það má segja.. hvar þar sem kreditkortið getur fengið smáútrás. Og í sambandi við gjafirnar. Að sjálfsögðu er gaman að fá fínar og dýrar gjafir.. stóran, harðan pakka í glansandi pappír.. en það er svo endingarstutt. Maður skoðar það og er sáttur, leggur það síðan í pakkahrúguna og snýr sér að þeim næsta. Það sem ég fékk þessi jól og á eftir að varðveita best er jólakortið frá Júlíönu minni og heimagerði geisladiskurinn frá Dagrúnu. Það voru virkilega fallegar gjafir og komu frá hjartanu..
Það sem ég er að reyna að segja er .. njótum þess að borða, huxa fallega, hvíla okkur og hafa það gott í staðinn fyrir að verða enn fátækari námsmenn en ella bara til að í rauninni sætta okkur sjálf, í staðinn fyrir að gefa.. þess vegna hálfétið epli eins og svínið gerði í Jólaósk Önnu Bellu, því jú- það er hugurinn sem skiptir máli=)
Alvaran tekin við. Ég hafði það til Akureyrar með þessa tugi kílóa af námsbókum sem ég reyndar leit ekki í í jólafríinu.. og er nú að aðlaga mig að nýju að lífinu í stórbænum, að anda að mér svifryksmengun og hætta að geta reitt mig á fjárhagsaðstoð foreldra minna^^
En þetta er ljúft. Gott að hitta vistarbúa aftur og vera komin í harða rúmið mitt.
Ég.. er að skorast undan áskorununum varðandi þessa þrjá apaketti mína^^ Júlíönu, Jóakim og Birgi..en þetta blogg átti víst að vera tileinkað þeim.. en ég skal bæta þeim það upp núna:P
Jóakim.. ég skrifaði nafnið þitt á himininn með stjörnublysinu mínu þegar klukkan sló inn nýju ári=*
Birgir.. ég vaknaði fyrir þig! Ég geri ekki mikið meira^^ Og það til að hlusta á háheimspekilegar pælingar sem voru verri en þegar bróðir minn rífur af mér sængina svona í morgunsárið..=)
Júlíana..ástkonan mín^^ ég er nú bara ekki neitt búin að gera fyrir þig greyið! Bara eitt við því að gera.. *Hlýýjar huxxanir*
Allir sáttir?
Heyrðu já! Árið! ..var yndi. Það sem bar hæst var.. hljómsveitin að sjálfsögðu. Okkur gekk alveg ljómandi vel myndi ég segja, allavega miðað við fyrsta ár. Spiluðum á sjö tónleikum á árinu ef ég man rétt og ég skemmti mér konunglega í öll skiptin. Ég kvaddi Brúarásskóla eftir sex ár, með takmörkuðum söknuði og flutti að heiman í fyrsta skipti til náttúruperlunnar Mývatns og seinna meir til Akureyrar til að draga upp einhverjar gáfur í MA. Ég varð par.. tvisvar, og verð að segja að það virkar betur núna í seinna skiptið^^ ég kynntist sunnanpjökkunum mínum betur og ..naut góðs af:P
Nóg af svo góðu..
..
Ef þú hlærð, hlær heimurinn með þér.
Ef þú grætur, græturðu einn.
..
Má bjóða ykkur sítrónur fyrir offitusjúklinga?
*flissfliss*
..aallavega.
Elskumst=)
Tuddles mín kær^^
...if I'm alive this time next year..

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)