miðvikudagur, janúar 31, 2007

Life is a long song.. og love song líka^-^

..og stigagangur eitt lyktar af alltof gömlum appelsínum.
Og *blíbb* syngur og dansar við Elton John..^-^ ...*hóst* Jóhann Már *hóst* thíhíh..

Aftur til Akureyrar. Fríið búið og vekjaraklukkan tekin til starfa á ný.. *andvarp*
Gott frí samt=) Byrjaði á að fara heim, ansi ósofin eftir ævintýri þeirra Jóhanns & Þorsteins með misnot af vodkapelanum.. Öl er böl já!

Heima var gott. Fulltfullt af ást^-^ ég heimsótti Egilsstaði. Það var gotterí.. eins og góð vinkona mín Dagrún Norsarafari segir. Fékk mér Búlluborgara, það var svo sannarlega langþráð:) og hitti alla grallarana, hljómsveitina og allar grúppíana sem elta þær á röndum, gamla bekkjarfélaga og skólafélaga og Gummaknús!!
Síðan suuður!! Það var langþráðast=) og mest gotterí! ég afrekaði margt þar.. ég sleikti nefið á Bjarna með viðkomu í linsunni á myndavélinni minni, sýndi einstaka menningarlega hæfileika mína með því að rugla viðskiptabanka saman við hraðbanka, eða hvað í helvítinu sem þetta var! *roðn*=) rúhústaði Jóakim í kleppara inná Kaffi Hljómalind og ... =) aaaást..



..þú samlokuna mína? híhíh!

ég er ófær um að segja eitthvað gáfulegt!
Miri ómar í herbergi ..1210 og Jóhann krassar stemningunni einstaka með því að syngja Kindin Einar með frumlegum og frumsömdum texta^^ .. og Margrét gerir eitthvað greindarlegt á Veraldarvefnum.

Sound of silence..

Nei! ég gefst upp! Það bara kemur ekkert gáfulegt! .. sætti við fávísi í dag er óumflýjanleg.
ég læt ykkur vita þegar eitthvað snjallt kemur út frá heilabúinu mínu..

www.myspace.com/karpediiem =) ógó dugleg þessa dagana

Tuddles mín kær^-^

..we will meet in the sweet light of dawn=)

miðvikudagur, janúar 10, 2007

Ég mun deyja úr fáfræði..

..sagan sem fylgir titlinum er óendanlega hálfvitaleg, og hana mun ég segja síðar, þegar ég er ekki upptekin við að syrgja mína eigin heimsku..

...


..*sorg*..

...


Reyndar á þetta eftir að verða fyndið eftir smástund, en þangað til ..þá líður mér illa.

miðvikudagur, janúar 03, 2007

Bless 2006! Bless Saddam! Bless Náttúra!

Hæ=)
ég biðst afsökunar fyrir skriftleysi mitt upp á síðkastið, ég hef einfaldlega verið upptekin við að jólast og vera löt.. sem minnir mig á það að þessum sturluðu og þreytandi hátíðum er að ljúka og vil ég nota tækifærið og óska öllum þeim sem ég hef ekki óskað, og eða þá óska þeim sem ég hef þegar óskað aftur - Gleðilegra jóla og hamingjuríks nýs og ó svo spennandi árs=) og þakka öllum sem eiga þakkir skilið fyrir að vera þið og ..veita mér ást^^

En aftur að hátíðunum sjálfum.
Ég elska jólin. Innilega mikið. Hefðirnar, maturinn, kærleikurinn, hátíðleikinn yfir öllu, ljósadýrðin.. - en hvar er friðurinn? Hátíð ljóss og friðar, ekki satt?
Einhvern veginn finnst mér það löngu grafið og gleymt og spreð og stress tekið við með tilheyrandi brjálæði í verslunarmiðstöðum, búðum og það má segja.. hvar þar sem kreditkortið getur fengið smáútrás. Og í sambandi við gjafirnar. Að sjálfsögðu er gaman að fá fínar og dýrar gjafir.. stóran, harðan pakka í glansandi pappír.. en það er svo endingarstutt. Maður skoðar það og er sáttur, leggur það síðan í pakkahrúguna og snýr sér að þeim næsta. Það sem ég fékk þessi jól og á eftir að varðveita best er jólakortið frá Júlíönu minni og heimagerði geisladiskurinn frá Dagrúnu. Það voru virkilega fallegar gjafir og komu frá hjartanu..
Það sem ég er að reyna að segja er .. njótum þess að borða, huxa fallega, hvíla okkur og hafa það gott í staðinn fyrir að verða enn fátækari námsmenn en ella bara til að í rauninni sætta okkur sjálf, í staðinn fyrir að gefa.. þess vegna hálfétið epli eins og svínið gerði í Jólaósk Önnu Bellu, því jú- það er hugurinn sem skiptir máli=)

Alvaran tekin við. Ég hafði það til Akureyrar með þessa tugi kílóa af námsbókum sem ég reyndar leit ekki í í jólafríinu.. og er nú að aðlaga mig að nýju að lífinu í stórbænum, að anda að mér svifryksmengun og hætta að geta reitt mig á fjárhagsaðstoð foreldra minna^^
En þetta er ljúft. Gott að hitta vistarbúa aftur og vera komin í harða rúmið mitt.

Ég.. er að skorast undan áskorununum varðandi þessa þrjá apaketti mína^^ Júlíönu, Jóakim og Birgi..en þetta blogg átti víst að vera tileinkað þeim.. en ég skal bæta þeim það upp núna:P

Jóakim.. ég skrifaði nafnið þitt á himininn með stjörnublysinu mínu þegar klukkan sló inn nýju ári=*
Birgir.. ég vaknaði fyrir þig! Ég geri ekki mikið meira^^ Og það til að hlusta á háheimspekilegar pælingar sem voru verri en þegar bróðir minn rífur af mér sængina svona í morgunsárið..=)
Júlíana..ástkonan mín^^ ég er nú bara ekki neitt búin að gera fyrir þig greyið! Bara eitt við því að gera.. *Hlýýjar huxxanir*

Allir sáttir?

Heyrðu já! Árið! ..var yndi. Það sem bar hæst var.. hljómsveitin að sjálfsögðu. Okkur gekk alveg ljómandi vel myndi ég segja, allavega miðað við fyrsta ár. Spiluðum á sjö tónleikum á árinu ef ég man rétt og ég skemmti mér konunglega í öll skiptin. Ég kvaddi Brúarásskóla eftir sex ár, með takmörkuðum söknuði og flutti að heiman í fyrsta skipti til náttúruperlunnar Mývatns og seinna meir til Akureyrar til að draga upp einhverjar gáfur í MA. Ég varð par.. tvisvar, og verð að segja að það virkar betur núna í seinna skiptið^^ ég kynntist sunnanpjökkunum mínum betur og ..naut góðs af:P
Nóg af svo góðu..

..

Ef þú hlærð, hlær heimurinn með þér.
Ef þú grætur, græturðu einn.

..

Má bjóða ykkur sítrónur fyrir offitusjúklinga?
*flissfliss*

..aallavega.

Elskumst=)

Tuddles mín kær^^

...if I'm alive this time next year..