Augu mín opnast sífellt betur fyrir því hvers kyns ranghugmyndir ég hafði um menntaskóla.
En auðvitað breytast hlutir ekkert þótt þeir skipti um nafn! Sé ekki betur en sama myglaða íhaldið ríki í þessarri menntastofnun og úrkynjaða sveitaskólanum við brúnna..
Ég einfaldlega get ekki áttað mig á því hvers vegna unglingum er safnað saman í stórar byggingar eins og gemsar í réttum, hlaðnir upp af doðröntum og heilaþvegnir af gömlum vana..
Hvers vegna fáum við ekki að vita neitt um lífið sjálft? Af hverju er endalaust haldið í gamlar hefðir og reglur og enginn veit hvað nýbreytni þýðir?
Hvernig væri að undirbúa unglinga fyrir ferðalög og búsetu annarsstaðar og kynna fyrir þeim ólíka menningarheima í staðinn fyrir að leggja á minnið allar mögulegar fallbeygingarundantekningar og sagnorðareglur?
Búa okkur undir að geta séð sjálf um okkar fjármál í stað þess að krassa niður bunkana af brotabrotaútreikningum?
....
Og hver í fjáranum fann upp bóklegar íþróttir?
*dæs* uppreisnarhugurinn minn dvínar..
..og ég sest niður og held áfram við eyðufyllingarnar.
þriðjudagur, september 26, 2006
laugardagur, september 23, 2006
Dánarfregnir:
Í dag dó maður.
Við sólskinið inn um gluggann og þunglyndislegan jazz á Rás 1.
og í augnablik talaði fólk í hálfum hljóðum og hjúkkan tiplaði á tánum.
En um leið og rúmið var tómt og hurðinni lokað
hækkaði náunginn aftur í sjónvarpinu
og konan hellti upp á kaffi.
Tregabundni jazzinn endaði og við tók klassískt dægurlag.
Sjúkraflutningamennirnir spjölluðu um samfélagsvandamálin
meðan líkið varð kalt og herbergið var tæmt.
Í dag dó maður.
Hverjum er ekki sama?

föstudagur, september 22, 2006
Netvafr & Landshornavafr
Eftir skopparakringluhátt í allt sumar á milli landsfjórðunga með rifnar rætur, er ég búin að planta mér niður hér á kjallarahæð vistar Menntaskólans á Akureyri og merkja mér minn helming herbergisins með mér kærum hlutum í hverju horni. Þótt sumir hlutir hefðu mátt fara betur ..þeir sem vita hvað ég er að tala um - vita hvað ég er að tala um ^^ .. þá er ég mjög þokkalega sátt. Bekkurinn minn er indæll, þótt það, að sjálfsögðu, eigi aldrei neitt eftir að jafnast á við apaketti Brúarásskóla=) Skólasetning..einhvernveginn finnst mér skólastjórar aldrei vera eðlilegt fólk. Busavígsla.. frekar aum, á ljúfan/sveittan/pínulítið steikt eins og beikon/blautan hátt þó. Busaball.. ég dansaði^^ og hlýnaði í hjartanu í smá. Og fólkið er fallegt.
..við boltalausu erum auðvitað á okkar stað í tilverunni - í Sorpu^^ Stúdíó Pappaás-Stúdíó Máni/Skúli.. hann á fullkomlega skilið að vera þarna núna þar sem hann eyddi þónokkrum -líklega undir yfirborðinu- strekktum klukkutímum í að horfa á okkur sýna pínulítið dulda hæfileika okkar og reyna að koma þeim yfir á upptöku. Það ku hafa verið "Bakbrotið fjall", sem er það lag sem hefur þroskast hvað mest með okkur, er óhætt að segja. Me likes it=) Síðan er það þetta nýja lag, sem virðist alltaf vera að stækka í umsvifum.. það gæti orðið ansi volgt lag..
.. ég er orðin fátækur námsmaður. Endilega styrkið mig með hlýjum huxunum.. ^^ .. eða þurrkuðum apríkósum og karamelluvöfflum =) ...sprell. Styrkið mig frekar með heimsókn þegar þið eruð í stórbænum. Herbergi 1221. Skrifið það bakvið litlu tána.
..og Takk fiðrildin mín fyrir daginn í gær:* og nóttina ^^..grrrr.. ;)
Cheero darlings..
BóBó..

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)