þriðjudagur, september 26, 2006

Konungur íhaldsins

Augu mín opnast sífellt betur fyrir því hvers kyns ranghugmyndir ég hafði um menntaskóla.
En auðvitað breytast hlutir ekkert þótt þeir skipti um nafn! Sé ekki betur en sama myglaða íhaldið ríki í þessarri menntastofnun og úrkynjaða sveitaskólanum við brúnna..
Ég einfaldlega get ekki áttað mig á því hvers vegna unglingum er safnað saman í stórar byggingar eins og gemsar í réttum, hlaðnir upp af doðröntum og heilaþvegnir af gömlum vana..
Hvers vegna fáum við ekki að vita neitt um lífið sjálft? Af hverju er endalaust haldið í gamlar hefðir og reglur og enginn veit hvað nýbreytni þýðir?
Hvernig væri að undirbúa unglinga fyrir ferðalög og búsetu annarsstaðar og kynna fyrir þeim ólíka menningarheima í staðinn fyrir að leggja á minnið allar mögulegar fallbeygingarundantekningar og sagnorðareglur?
Búa okkur undir að geta séð sjálf um okkar fjármál í stað þess að krassa niður bunkana af brotabrotaútreikningum?
....

Og hver í fjáranum fann upp bóklegar íþróttir?

*dæs* uppreisnarhugurinn minn dvínar..

..og ég sest niður og held áfram við eyðufyllingarnar.

Engin ummæli: