Eftir skopparakringluhátt í allt sumar á milli landsfjórðunga með rifnar rætur, er ég búin að planta mér niður hér á kjallarahæð vistar Menntaskólans á Akureyri og merkja mér minn helming herbergisins með mér kærum hlutum í hverju horni. Þótt sumir hlutir hefðu mátt fara betur ..þeir sem vita hvað ég er að tala um - vita hvað ég er að tala um ^^ .. þá er ég mjög þokkalega sátt. Bekkurinn minn er indæll, þótt það, að sjálfsögðu, eigi aldrei neitt eftir að jafnast á við apaketti Brúarásskóla=) Skólasetning..einhvernveginn finnst mér skólastjórar aldrei vera eðlilegt fólk. Busavígsla.. frekar aum, á ljúfan/sveittan/pínulítið steikt eins og beikon/blautan hátt þó. Busaball.. ég dansaði^^ og hlýnaði í hjartanu í smá. Og fólkið er fallegt.
..við boltalausu erum auðvitað á okkar stað í tilverunni - í Sorpu^^ Stúdíó Pappaás-Stúdíó Máni/Skúli.. hann á fullkomlega skilið að vera þarna núna þar sem hann eyddi þónokkrum -líklega undir yfirborðinu- strekktum klukkutímum í að horfa á okkur sýna pínulítið dulda hæfileika okkar og reyna að koma þeim yfir á upptöku. Það ku hafa verið "Bakbrotið fjall", sem er það lag sem hefur þroskast hvað mest með okkur, er óhætt að segja. Me likes it=) Síðan er það þetta nýja lag, sem virðist alltaf vera að stækka í umsvifum.. það gæti orðið ansi volgt lag..
.. ég er orðin fátækur námsmaður. Endilega styrkið mig með hlýjum huxunum.. ^^ .. eða þurrkuðum apríkósum og karamelluvöfflum =) ...sprell. Styrkið mig frekar með heimsókn þegar þið eruð í stórbænum. Herbergi 1221. Skrifið það bakvið litlu tána.
..og Takk fiðrildin mín fyrir daginn í gær:* og nóttina ^^..grrrr.. ;)
Cheero darlings..
BóBó..
föstudagur, september 22, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli