sunnudagur, desember 10, 2006

Allt getur beðið til morguns^^

..MSN laust kveld. enda laugardagskveld:P ósköp eðlilegt.. nema fyrir mig sem hunskaði mér heim snemma úr staffapartýinu.
Þetta hefur verið indæll dagur, Damien Rice-legur dagur. Vaknaði mygluð um hádegi -einungis Birgi að kenna^^-og kom mér niður á Glerártorg til gaula rám og sofhás með kórnum. Klóraði í bakkana varðandi jólagjafirnar með fögrum félagsskap nokkurra kórfélaga, kláraði nokkur óekkí krefjandi verkefni, sífellt við hugann við hversu gaman væri nú að geta unnið heimaverkefni sem maður hefði áhuga á að gera.. grasið hinum megin, sjáið þið? ... kúrði í tónlistarleysi uns ég dröslaðist í jólahlaðborð Nýjabíós, sem var reyndar alveg frábærlega bragðgott og mettandi.

Það gerði samt það að verkum að ég fór að íhuga.. áfengi. Hvað er það sem gerir okkur -sumum- unglingum ókleift að skemmta okkur án áfengis? Nú ætla ég ekkert að vera með móral út í drykkjufólk, ég virði það jafnt og bindindisfólk. Ég fór bara að huxa um það hvers vegna við.. unga, hressa heilbrigða fólkið teljum okkur svo oft þurfa örvandi? efni til að vera partýhæf.
Það drekka líka langflestallir. Einstaka unglingar skera sig út úr þvögunni. Vinir mínir fyrir austan, sunnan og norðan drekka - langflestallir. Og allir vilja þeir að ég drekki. Sem er kannski skiljanlegt.. það gæti máske verið áhugaverð sjón:P en *dæs* þetta átti að vera beinskeytt og rökstudd grein hjá mér ..en síðan bara stökk hugur minn úr einu í annað og endaði loks í einlægu mumfi. Gildir einu.. þetta kemur hjá mér einn daginn. Huxx..
Allt getur beðið til morguns þó.
Erum við nokkuð mikið meira en börn?

Angurvær jazz Ellu Fitzgerald. Apríl í París..

Byrjuð að safna mér fyrir plötuspilara. 24.000 krónur hér kem ég=)

Ég sakna jólanna..
jólanna með heimabökuðum piparkökum heima í stofu en ekki keyptum piparkökum í körfunni upp í afgreiðslu vistarinnar.
Jólanna með jólaföndri í Brúarási en ekki tvöföldum náttúrufræðitíma í Menntaskólanum á Akureyri.
Jólanna með tíma til að horfa á jóladagatalið eftir kvöldgjafir í heyugum ullarsokkum en ekki á þeytingi með hugann við skiladaga og heimaverkefni.

..ojæja. Grúsk í V for Vendetta eða Vita Brevis er ívið meira freistandi en star á of bjartan tölvuskjáinn, í myrkrinu klukkan seint.

..elskumst=)

Tuddles^^

13 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Plötuspilara eru neet!

Nafnlaus sagði...

Hahah, já við plebbarnir .. Fórum snemma heim úr partýinu .. Ef ég á að segja alveg satt þá fór ég heim til vinkonu minnar eftir það og steeinsofnaði :$ .. Hahaha, en takk fyrir að taka vaktirnar mínar ;)

Kv, Sunna =)

..tilefni til huxxs. sagði...

já.. ég fór líka að sofa^^ eftir smá netvafr:P
en það var nú lítið.. mig vantar smá aur=)

Nafnlaus sagði...

Bara ++kvittia:):)

Nafnlaus sagði...

ég drekk ekki og hef aldrei gert.. ég setti mér það mottó að drekka ekki nema mig langi til og enn sem komið er ekki sú löngun komin upp

Nafnlaus sagði...

BLAAAAAAAAAAAAAAAAST YOU>-< Þú bloggaðir ekki í gærkvöldi, 27. nóv til að hafa það á hreinu! Þú færð sko engar jólagjafir næstu 3 árin!

kv. Júlmundur Jólasveinn
Jólabæ 2, Esjunni

..tilefni til huxxs. sagði...

ówwhh.. það.. er ekkert gaman:(
ég biðst innilega afsökunar og lofa að taka áskorun þinni um að nefna þig eins mikið og ég get í næsta bloggi.. þannig að þá þarf ég að nefna júlíana, jóakim og birgir eins oft og ég get.. það ætti að vera lítið mál=)

Nafnlaus sagði...

Jebb, þú verður að gera það:) Og heii... Ég er alveg sæmilega hress svo lengi sem ég er ekki að hlaupa og hoppa og eitthvað þannig að er ekki málið að hafa æfingu bráðum?:D Heeelst sem fyrst því þú ferð náttúrulega 2. janúar eða hvað?

..tilefni til huxxs. sagði...

ég fer 3.
en jú.. ég er ógó til í æfingu..
hvað segirðu um þynnkuæfingu - allavega sumra hljómsveitarmeðlima - snemma á nýársdag? ^^ væri það ekki hreint og beint stórfenglegt?=)

Nafnlaus sagði...

Huh æfing.. 1. jan:/ hrmm hrmm..það ætti að veera hægt, ef skólavöld leyfa það. Og ef einhver einn af þynnkunum nennir að keyra. Verður þú ein þynnka??

Nafnlaus sagði...

Júúúú:) Þynnku æfing JE BEIBÍ:D Ég verð samt ekkert þunn:( Blaaast you einkyrningasótt>-< En jújújújújú! Æfing 1. jan... Hvenær ferðu annars norður elskan?^-^

..tilefni til huxxs. sagði...

ég var nú bara allt annað en þynnka sjáðu til^^ ..ég var bláedrú.. en núna ó svo syybbin! æfing 2. janúar frekar:) er það þá ákveðið að hætti kaspers, jespers og jónatans? =)

Nafnlaus sagði...

Jáhá. en hérna, hvernig væri að fara að koma með nýja skrift handa prestum hérna. Það þarf nú að skrifta annað slagið til að viðhalda honum aðeins við efnið.