Það er alltaf best að finna lag sem fangar skap manns þegar maður situr uppi í rúmi með lófafylli af tónlist.. ég byrjaði á Jailhouse Rock með Elvis, en ég er aðeins of lúin^^ rambaði síðan á Popplagið með Sigur Rós og það var nákvæmlega það. Þá vitið þið það=)
Lífið gengur sinn vanagang. Mánudagur. Minn var kátur.
Og allt í einu varð mér huxað til Bangsímons..
..onei. Enginn Bangsímon í sjónvarpinu á mánudagskvöldi. Bara endursýning á útþynntri Spaugstofunni, Jay Leno að gera grín af IKEA og kirkjunni og auglýsingar..*andvarp*
*geisp* MSN laust kvöld. Allir að gera eitthvað annað býst ég við. Ég megna ekki einu sinni lítið herbergjarölt í augnablikinu. Að hlusta á gamla rónann sem kom í Sambíóin okkar röfla um Hagstofu Íslands, Lystigarðinn, Vaðlaheiðina, veðurfræði og bæta síðan við einstaka sinnum:
-Jóla hvað?
hefur líklega haft svona örmagnandi áhrif á mig. Hann var nú samt vænsti kall, eins og hann spurði mig allavega sex sinnum að- hann hefur bara svolítið gaman af því að fá sér smá í staup á sínum eldri árum, eins og hann sagði mér allavega fjórtán sinnum.
Dagrún! er að fara.. af landi brott. Það verður ekkert skemmtilegt. Ég mun sakna hennar. Við verðum að kveðja hana með viðeigandi hætti^^ aye? Uppástungur? =)
....
17 dagar í jólafrí - 20 dagar í jól - of margir dagar í næstu sunnanferð..
*væl*
Tími kominn á lítinn svefn.
Tuddles mín kæru^^
mánudagur, desember 04, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Hey Gulla, ég fann nýtt út í gær, þegar ég var að hlusta á Cat Stevens.. thíthí.. Þekkiru lagið Morning has broken. Jólalag skal ég segja þér að það er.
Fannst það fyndið þegar ég rakst á þetta. Gott lag samt sem áður.
En svo hitti ég þig líklega eftir áramótin:):)
En veistu, ég var i stærðfræðiprófi í dag og gekk hið besta. Mjög glöð. Langaði bara að koma þessu frá mér.
Pff, ég er stuði til að gera Jólakort núna... og skreyta þau. pff, en þarf að læra.. læra fyrir síðasta prófið sem ég þarf eitthvað að læra afmennilega fyrir. Félagsfræði. Svo er enska eftir helgi, og það þþarf varla að læra undir:) Jeijjj..
En tuddles....^)^ Just like you say it.
jújú=) það ku vera jólalag. ég glamraði það einu sinni á gítar á fyrsta ári^^
eftir áramót? .. ég kem nú austur fyrir jól:P
Til hamingju með það.. ég er stolt:P og gott gengi í því sem þú átt eftir.
Heiii^-^ Jeijj ég hlakka svo til í suuuumar^^ Þ.e. ef planið okkar verður að veruleika:)
Skrifa ummæli