miðvikudagur, janúar 03, 2007

Bless 2006! Bless Saddam! Bless Náttúra!

Hæ=)
ég biðst afsökunar fyrir skriftleysi mitt upp á síðkastið, ég hef einfaldlega verið upptekin við að jólast og vera löt.. sem minnir mig á það að þessum sturluðu og þreytandi hátíðum er að ljúka og vil ég nota tækifærið og óska öllum þeim sem ég hef ekki óskað, og eða þá óska þeim sem ég hef þegar óskað aftur - Gleðilegra jóla og hamingjuríks nýs og ó svo spennandi árs=) og þakka öllum sem eiga þakkir skilið fyrir að vera þið og ..veita mér ást^^

En aftur að hátíðunum sjálfum.
Ég elska jólin. Innilega mikið. Hefðirnar, maturinn, kærleikurinn, hátíðleikinn yfir öllu, ljósadýrðin.. - en hvar er friðurinn? Hátíð ljóss og friðar, ekki satt?
Einhvern veginn finnst mér það löngu grafið og gleymt og spreð og stress tekið við með tilheyrandi brjálæði í verslunarmiðstöðum, búðum og það má segja.. hvar þar sem kreditkortið getur fengið smáútrás. Og í sambandi við gjafirnar. Að sjálfsögðu er gaman að fá fínar og dýrar gjafir.. stóran, harðan pakka í glansandi pappír.. en það er svo endingarstutt. Maður skoðar það og er sáttur, leggur það síðan í pakkahrúguna og snýr sér að þeim næsta. Það sem ég fékk þessi jól og á eftir að varðveita best er jólakortið frá Júlíönu minni og heimagerði geisladiskurinn frá Dagrúnu. Það voru virkilega fallegar gjafir og komu frá hjartanu..
Það sem ég er að reyna að segja er .. njótum þess að borða, huxa fallega, hvíla okkur og hafa það gott í staðinn fyrir að verða enn fátækari námsmenn en ella bara til að í rauninni sætta okkur sjálf, í staðinn fyrir að gefa.. þess vegna hálfétið epli eins og svínið gerði í Jólaósk Önnu Bellu, því jú- það er hugurinn sem skiptir máli=)

Alvaran tekin við. Ég hafði það til Akureyrar með þessa tugi kílóa af námsbókum sem ég reyndar leit ekki í í jólafríinu.. og er nú að aðlaga mig að nýju að lífinu í stórbænum, að anda að mér svifryksmengun og hætta að geta reitt mig á fjárhagsaðstoð foreldra minna^^
En þetta er ljúft. Gott að hitta vistarbúa aftur og vera komin í harða rúmið mitt.

Ég.. er að skorast undan áskorununum varðandi þessa þrjá apaketti mína^^ Júlíönu, Jóakim og Birgi..en þetta blogg átti víst að vera tileinkað þeim.. en ég skal bæta þeim það upp núna:P

Jóakim.. ég skrifaði nafnið þitt á himininn með stjörnublysinu mínu þegar klukkan sló inn nýju ári=*
Birgir.. ég vaknaði fyrir þig! Ég geri ekki mikið meira^^ Og það til að hlusta á háheimspekilegar pælingar sem voru verri en þegar bróðir minn rífur af mér sængina svona í morgunsárið..=)
Júlíana..ástkonan mín^^ ég er nú bara ekki neitt búin að gera fyrir þig greyið! Bara eitt við því að gera.. *Hlýýjar huxxanir*

Allir sáttir?

Heyrðu já! Árið! ..var yndi. Það sem bar hæst var.. hljómsveitin að sjálfsögðu. Okkur gekk alveg ljómandi vel myndi ég segja, allavega miðað við fyrsta ár. Spiluðum á sjö tónleikum á árinu ef ég man rétt og ég skemmti mér konunglega í öll skiptin. Ég kvaddi Brúarásskóla eftir sex ár, með takmörkuðum söknuði og flutti að heiman í fyrsta skipti til náttúruperlunnar Mývatns og seinna meir til Akureyrar til að draga upp einhverjar gáfur í MA. Ég varð par.. tvisvar, og verð að segja að það virkar betur núna í seinna skiptið^^ ég kynntist sunnanpjökkunum mínum betur og ..naut góðs af:P
Nóg af svo góðu..

..

Ef þú hlærð, hlær heimurinn með þér.
Ef þú grætur, græturðu einn.

..

Má bjóða ykkur sítrónur fyrir offitusjúklinga?
*flissfliss*

..aallavega.

Elskumst=)

Tuddles mín kær^^

...if I'm alive this time next year..

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

JEEEIJ^^ Þú bloggaðir^-^ Híhí takk fyrir að minnast á ástkonu þína^-^ Og í alvöru varstu ánægð með kortið mitt:o Híhí mér hlýnaði í hjartanu við að lesa það^^ Kannski ég noti hæfileika mína bara í kortagerðir?:) hoho^^

En allavega frábært blogg, virkilega gaman að lesa það:]alveg sammála með þetta jólastress, það gleyma allir friðinum... Þetta á að vera hátíð kærleikar og friðar ekki satt?

Nafnlaus sagði...

Vúppsí ég ætlaði að skrifa now.. bara ég skrifa of oft know í staðinn. Hhe, en já anyways, gott blogg og takk fyrir að vera í árinu mínu líka.