fimmtudagur, febrúar 15, 2007

Velkomin til Þórsmarkar!

Lífið er gott.
Byrjað að ganga sinn vanagang aftur. Skóli. Vinna. Hangs. Best þannig^^
Ég er flutt yfir á gömlu vist, á Þórsmörk. Herbergi 209. Ógó kósí! Mér finnst þetta virkilega indælt.
Ég er eina stelpan á stigaganginum, sem er pínu skondið. Er að undirbúa að yfirtaka eitt klósettið af sameiginlegu klósettunum okkar með því að setja dömubindispakka þangað og hengja stelpumyndir þar inn.. veit ekki hversu mikið strákar fíla það að hafa eitt stykki Orlando Bloom eða Justin Timberlake hangandi yfir sér meðan þeir pissa=P og þó...

*þankahríð*


en já. Form er fegurð..

Angurvært.
Iron & Wine og spjall.

Ég fór að íhuga í þýskutíma.
Það er frekar mikill munur á okkar kynslóð og þeirri á undan. Þeirri gömlu finnst við oft vera hálfgerðir hálfvitar sem kunnum ekki til verka og fussa og sveia yfir drykkjulátunum og sukkinu í okkur, letinni, dónalegheitunum og öllu sem amar að okkur..
En hvaðan kemur það allt? Hvaðan fáum við tölvurnar? Hver selur okkur áfengið og dópið?
Hver veitir okkur frelsi, sjálfstæði og möguleika til að gera það sem við viljum?
Og hver hefur mest áhrif á það sem við viljum gera?






Kvennakvöld síðasta þriðjudag. Ég, Ásta og Margét skildum strákana eftir heima eitt kvöld..
og auðvitað fóru þeir að grallarast eitthvað ótrúlega ósniðugt..
Kvennakvöldið var yndi samt. Allt sem allra kvenrembulegast, nokkrir karlkyns MA-ingar roðnuðu niður í neðri hluta og mumbluðu út úr sér vandræðalegum svörum þegar þeir voru spurðir út í hápersónulega hluti og olíubornir sportífartís þjónuðu okkur pizzur=) Ágætis eyðsla á kvöldi.






... =)












Jóakim átti afmæli=) á Valentínusardag.. svo sykurhúðað. og síðan óskaði bekkjasystir mín mér til hamingju með hann og allir héldu að ég ætti afmæli og ruku til og óskuðu mér til hamingju.. og.. það var öörlítið vandræðalegt.

Birgir! ..Hann verður að fylgja með greyið^^


..Nóg að sinni.
Tuddles mín kær ^-^
Góðar stundir!

13 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég vann, ég var með, vúhú!

en ég er ekkert grey.. ég er karlmenni.. urr, urr....
..
.

Nafnlaus sagði...

Guðrún.. hvað ertu að gera með karlmannsmyndir inn á klóssetti?????? Þetta var það fyrsta sem datt í minn haus. hehe.

Nafnlaus sagði...

Hver vill ekki pissa með Orlando Bloom eða Justin Timberlake? Ég held að það verði seint til sá karlmaður sem segi nei takk við því!!

Nafnlaus sagði...

Töff myndir! :D Þótt ég segi sjálf frá og sé á þeim öllum ;)

Haha.. Gott blogg! Gott konukvöld! Gott að vera komin á Akureyri ! ;)

-Ásta Bjé!

Nafnlaus sagði...

Hey, ekki minnistu á BESTA nágranna í heimi, Jóóhann!

Núna er ég barasta í fýlu..

Neeee, bara djóóka..

Sííja

Jóóhann

Nafnlaus sagði...

Er það kannski mamma sem veitir þér frelsið:)

margret sagði...

Ég færi nú varlega í að hengja upp myndir af fallegum karlmönnum inná klósetti, það gæti verið að þú komist þá bara aldrei að.

Konukvöldið var snilld. Efa að karlarnir skemmti sér svona vel á sínu kvöldi. Hvað ætli feministarnir segi td ef kvenmenn fara að stippa í menntaskólum landsins. Já svona er kynjamunurinn okkur stundum hliðhollur. Veit reyndar ekkert hvað þeir ætla að gera í þessu pulsupartýi.

Þetta er nú líklegast að verða lengsta comment blogg-sögunnar og þá læt ég það duga.

Kv. Margrét Arna

margret sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
margret sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
..tilefni til huxxs. sagði...

hahah.. núna er eins og margrét hafi verið að segja eitthvað ljótt en neih.. hún var nú bara eitthvað að kjánast=P

úh jé! ég fékk komment frá mömmu! hahah! hí á ykkur! ég er töff! ekki þið!! ^-^

Nafnlaus sagði...

ég er með mömmu á msn og hún sagði skítt á msn.. má ég líka vera töff eða hvað?:P:P

Nafnlaus sagði...

Húm, sniðug myndin, þessi efsta. Væri til í að gera svipaða tilraun og hafa sömu manneskjuna á öllum stöðum =)

Nafnlaus sagði...

Guuuuuuuuuðrún^-^ Ætlaru að koma memmér til Noregs í páskafríinu að heimsækja Dagrúnu?:]