föstudagur, desember 01, 2006

And a rock feels no pain..

Hér er ég aftur á ný=)

1.desember. Ein þriðja gella nýkomin úr plokkun&litun eða handsnyrtingu og ég fæ spurninguna 'ertu búin að finna þér kjól?' að meðaltali tvisvar á dag. En það er svosem ekkert verra en hvað annað. Í kveld mun ég brýna raustina fyrir framan 900 manns. Það verður gaman^^ ..en allt stendur og fellur með gleðinni í þessu máli, og ég skipaði sjálfa mig í það vanþakkláta og erfiða starf að vera með sífelldan jákvæðnisáróður í kórnum.
Hvernig sem fer er ég stolt í hjarta^^ of margir klukkutímir, falskir tónar og raddleysi farnir í þetta til að vera í fýlu..

Allt þetta kúr hefur hefur skert heilastarfsemi mína.. já=) ég er búin að vera að kúra og vera í súrrealísku draumamóki og sofa, síðustu klukkutímana, og hlusta annars hugar á playlistann minn tileinkaður nákvæmlega þessum athöfnum. I'll follow you into the dark með Death cab for Cutie í spilun í augnablikinu.. *hux* oooog svo Barbriallen Simon & Garfunkels.. yndi.

Pizza með skinku og kryddpylsu -sem er pepperone bókstaflega, mötuneyti MA ætti að fá bikar fyrir að geta látið allt hljóma betur en það bragðast - bíður mín..

...12 klukkustundum síðar=)

Þessi matartími endaði í langri og miskunnarlausri tilraun mín og Péturs við að drepa tímann.. gekk nú reyndar prýðilega.. hann dó allavega í lokin^^

*svengd*

Úh:P Þetta blogg spannar tvo daga..því nú er kominn 2.des^^ Jagúar hefur kvatt sviðið og ég er orðin funky junky með sára fætur, lúin bein og stolt hjarta..klukkan of mikið til að geta huxanlega verið fersk í tveggja klukkustunda aukastærðfræðitímanum um hádegi á morgun. Drasl.

Gömlu dansarnir! Nýleg persónuleg uppgötvun. Ég hlakka strax til þorrablótsins á Héraði, þar sem maður fær tækifæri til að dansa við fagmenn.. *hóst* strákar.. ;)

Ég hallast ætíð meira að því að flutningur minn til Akureyrar hafi verið ómeðvituð málamiðlun.. staðsetti mig akkúrat á milli vinahópanna minna, í vandræðalegri fjarlægð frá báðum þeirra, sem hefur skapað æ meiri bobba í heilahveli mínu upp á síðkastið.. þið sem vitið hvers vegna, þið vitið hvers vegna:)
Sem minnir mig á.. pYlsa með kartöflusalati er án efa eitthvað sem allir ættu að upplifa að snæða, sund á nærfötunum í frosti er eitthvað sem ..já:P var ekkert sérlega gáfulegt að upplifa en algjerlega þess virði samt sem áður.
Ég fíla ekki tásluklám.
..en ég fíla Kaffi Hljómalind=)

Framtíð í biðstöðu.
*sof*
Tuddles mín kæru^^

.. and an island never cries.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jeij, ég get kommentað. En stuð stuð. Gott að þú skemmtir þér á 1.des:)

Og æði blogg.

..tilefni til huxxs. sagði...

Takk takk:)
mig klæjaði samt svo í fingurgómana þegar ég sá Jagúar á sviði. Mig langaði svo mikið að vera á sviðinu sjálf! Eða bara hvaða sviði sem væri.. með ykkur. Ég fæ alltaf þessa löngun þegar ég er nálægt lifandi tónlist.
Góðs viti?^^

Nafnlaus sagði...

Ja, ætli það sé ekki góðs viti:)

En hey veistu hvað ég fann út.. ég fann nýjan karl.. wanna see...

^)^ see
how cute is that..

Thíthí.

Nafnlaus sagði...

Hvað er málið með fólk sem er altlaf að skipta um blogg...takiðið mig til fyrirmyndar, ég er ennþá á blog.centra!!!!!!!! auðvelt að muna fyrir alla!!

en hvernig var kjólinn?

Nafnlaus sagði...

iss... Halla blog.central er drasl!

En Guðrún mín:) Hvernig er þetta? Búin að ákveða hvar þú ferður eftir áramót mín kæra?^-^ Og hvenær kemurðu heim um jólin?

Nafnlaus sagði...

Þetta er eins og rass með eina hrukku báðu megin.. mjög krúttlegt:P
ég huxa mjög svo að ég verði á akureyri eftir áramót. vegna þess að sénsinn að mamma og pabbi leyfi mér að fara frá MA svona snögglega og án þess að hafa tekið prófin er lítill. og ég þarf að ígrunda meira.. ég kem 21.desember:) ég ætla ekki að væla.. þetta er fínt.