þriðjudagur, mars 27, 2007

Það er alltaf hægt að finna sér eitthvað betra að gera en að sofa..


Vitið þið..


Þegar ég var fjórtán ára helltist lífið yfir mig allt í einu. Heimspeki.
Síðan eltist lífið úr mér og við tók snubbótt tilvera.
Sextán ára í jákvæðnisflippi vegna þess að það þaggar niður í vælinu í fólki.
Klæði mig spes því ég er ennþá að bíða eftir að fötin geri mig frumlega.
Flý venjuleikann því það sýnir best hvað við erum öll.
Bara verur efst í fæðukeðjunni með ekkert stórfenglegt í höndunum.


Gjörðir ala af sér huxanir. Huxanir ala af sér gjörðir.
Ég huxa – því er ég.
Ég er bara.
Því meira sem ég huxa því minna er ég.


Bætum við punkti, ýtum oftar á enter og köllum það ljóð.
Listvænt. Kallið mig artí.


--


Tók þunglyndiskast um daginn sem sprakk í Wordskjali. Þetta var afreksturinn.


..og lífið gengur enn og aftur sinn vanagang. Venjulegir hlutir í bland við þá sem eru of persónulegir fyrir þetta blogg.

Cat Power muldrar eitthvað syfjulegt og letjast við gítarinn.


Yndislegt kvöld samt sem áður=) .. takk ó svo mikið fyrir það Pála og kó^^ .. ég hló.


Mynd sem ég tók í Akureyrargöngunni. Kannski er ég sú eina.. en mér finnst eitthvað svo flott við hana.


Biðst innilega afsökunar á þessu samhengislausa og enteróða bloggi. Ég er sybbin.


Hafið góðan dag.


5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Bóbódebóbó! What's going on? You EMO?

No! You Bóbó!

Hahhahah, ég vil jákvæðarablogg næst, síja!!

;)Jóhann

Nafnlaus sagði...

hæhæ:) er ég skrýtin eða mér fannst þetta svo flott ljóð:) var þetta annars ekki ljóð.... see you á akureyri á söngvakeppninni

Nafnlaus sagði...

kv ólöf

Nafnlaus sagði...

Bóbó... Mér finnst að þú ættir að gera svona myndasíðu...:) Það er gaman að skoða myndirnar þínar :)

- Ásta Bjé Joð!

Nafnlaus sagði...

Takk sömuleiðis elskan =)
Hlakka til að sjá þig eftir frí!

Skrifaðu bók.