Urg!!
upptekni dagur..
Það eru opnir dagar í MA - Ratatoskur í MA þessa dagana, og þessi dagur stefnir í að vera ansi kaloríubrennandi og þreytandi líka.
Gærdagurinn fór í að dundast við að vera á fyrirlestrum en í dag var ég að vinna fyrir Munin allan skóladaginn og tók myndir og skrifaði niður hvað var að gerast á hinum ýmsu námsskeiðum og fyrirlestrum innan skólans og úti.. loksins búin og þá er Muninsfundur eftir smástund, beint í gítartíma, þvínæst kóræfing og þá Heimspekileg Dansveisla..
og auðvitað kýs ég að sitja hérna og væla í staðinn fyrir að nýta tímann til að læra fyrir setningafræðipróf á morgun..
Tel niður í svefn, helgi og páskafrí..
úh! til að nýta mér þetta tjáningarform þá spyr ég:
Hverjar voru, að ykkar mati, þrjár bestu/verstu íslensku/erlendu plötur ársins 2006?
Fann draumahúsið mitt núna áðan=)
..pínulítið kríli í kremju milli tveggja húsa.. yndi^^
...
Elskumst=)
Tuddles^^
2 ummæli:
ein ábending.....Vendetta er orðin að The Ones!!!
bara að benda þér á það....og þau eru mjög sennilega að fara að spila á road rage í sumar....
Farðu nú að blogga feita! :)
Afhverju var dansveislunni aflýst.. ég vildi fara í heimspekilega dansveislu..! ;/
heyrðu, að mínu mati er Alanis Morisette - The Collection besta platan.. er ekki viss með fleyri.. og sú versta er The Fallen - Franz Ferdinand.. Auk þess HATA ég Franz Ferdinand :D
Takk fyrir takk
-Ásta Bjé. Jónsdóttir
Skrifa ummæli